Orðlaus.

Ég get bara sagt eitttttttttttttttttttttttt um þetta mál, ég er orðlaus.

Ég trúi ekki að ,,haukamaðurinn", vinur minn, kunningi og jaxl (var nb frábær í handbolta) Óli Jó sé sáttur við svona heigulshátt, trúi því ekki fyrr en hann segir mér það.

 Kv. Sigurjón Sigurðsson.

es. sem gamall leikmaður með FH (rúmlega 100 leiki) er sárt og skrýtið að segja ,,ég vona að Fjölnir vinni".


mbl.is Atli Viðar og Heimir verða ekki með Fjölni í úrslitaleiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Málið snýst nú um fleira en Fjölni og FH.  FH-ingar hafa lánað leikmenn áður og bannað leiki gegn þeim sjálfum.  ÍBV lenti í þessu í fallslagnum 2005 þegar FH var stungið af í deildinni og þeir eru einfaldlega samkvæmir sjálfum sér.  Ég kalla hinsvegar eftir því að svona samningar verði bannaðir í íslenskum fótbolta svo svona sómadrengir þurfi ekki að líða fyrir og í þessu tilviki gætti FH þess að jafnt gengi yfir alla.

Jón Óskar Þórhallsson (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 09:21

2 identicon

Já, ég er viss um að þjálfarinn Óli Jó er ekki eins mikill heigull og stjórnarmenn knattspyrnudeildar FH eru, sömuleiðis er ég viss um að leikmenn FH skammast sín fyrir þessa heigulsákvörðun.

Stefán

Stefán (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 11:09

3 identicon

Það er ótrúlegt að það eru yfirleitt ekki Fjölnismenn sem kvarta yfir því að þessir samningar standi.  Vegna þess að FH hefur lánað Fjölni leikmenn, sem eru í meira lagi frambærilegir þá er Fjölnir í þeirri stöðu sem þeir eru í, ergó, góðir möguleikar á því að komast í efstu deild, og komnir í úrslit bikarsins.

 Nú er auðvelt að mála skrattann á vegginn.  En ég held að menn ættu að kíkja kannski svolítið á allar hliðar málsins.  Gefum okkur að Atli Viðar kæmist einn innfyrir vörn FH.  Hálf mínúta eftir af viðbættum tíma.  Staðan er 0:0.  Atli sólar Daða markvörð og skítur yfir. FH vinnur svo leikinn í framlengingu!   Hvernig haldið þið að fjölmiðlar myndu fjalla um málið?  Ég veit það, að þú Diddi minn yrðir þá fyrst orðlaus.

kv.

Ófeigur

Ófeigur (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurjón Sigurðsson

Höfundur

Sigurjón Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson
Höfundur er Hafnfirðingur sem spilaði lengi handbolta og heldur enn mikið upp á það sport. Golf og borðtennis hafa þó komið sterk inn undanfarið. Núverandi búseta er Club Punta Arabí - Es Canar - Ibiza. Starfa hér fyrir íslenska ferðaskrifstofu, Trans Atlantic. Ágætt hjá okkur í fyrra, gott í ár en öll teikn stefna í mikla aukningu á næsta ári. Höfundur hefur lokið prófi í viðskiptafræði BSc. og er með próf fyrir lengra komna í spænsku. Höfundur hefur komið víða við í sínu lífi og mörg verkefni liggja að baki, allt skemmtilegt bara misskemmtilegt. Njótið hvors annars :)
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Auswitsch, götumynd af gamla hlutanum
  • Auswitsch, nr. 2
  • Auswithsch, hvaða merki bar fólk
  • Herbergið í Krakow
  • Hótelsvítan í Varsjá

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband