Til hamingju!

Ég skellti mér á þennan leik í dag og það sem gladdi mig mest var að vera loksins á handboltaleik þar sem góð stemmning er.
Valsmenn voru vel að þessum sigri komnir þrátt fyrir að okkur haukamönnum hafi þótt dómgæslan ansi skrautleg á köflum en það réð ekki úrslitum að mínu mati.
Valsliðið á hrós skilið og Óskar Bjarni er greinilega að stimpla sig inn sem einn af betri þjálfurum sem við eigum hér á landi.  Markús Máni er líka í öðrum getuflokki og það kæmi mér ekki á óvart ef hann færi aftur að spila í bestu deildum í Evrópu. 
Ég vil samt nota tækifærið og hrósa mínum mönnum í Haukum með að ná að taka sig saman í andlitinu á lokasprettinum og er viss um að þeir verða í toppbaráttunni að ári.

 En stóra málið fyrir handboltann eru markaðsmálin og þar þarf að lyfta grettistaki.  Tækifærið er NÚNA.  Setja stefnu og vinna eftir henni og búa til stemmningu í kringum þessa íþrótt sem stór hluti þjóðarinnar dáir. 

Aftur til hamingju Valur.

 Mbk


mbl.is Valsmenn eru Íslandsmeistarar karla 2007
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurjón Sigurðsson

Höfundur

Sigurjón Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson
Höfundur er Hafnfirðingur sem spilaði lengi handbolta og heldur enn mikið upp á það sport. Golf og borðtennis hafa þó komið sterk inn undanfarið. Núverandi búseta er Club Punta Arabí - Es Canar - Ibiza. Starfa hér fyrir íslenska ferðaskrifstofu, Trans Atlantic. Ágætt hjá okkur í fyrra, gott í ár en öll teikn stefna í mikla aukningu á næsta ári. Höfundur hefur lokið prófi í viðskiptafræði BSc. og er með próf fyrir lengra komna í spænsku. Höfundur hefur komið víða við í sínu lífi og mörg verkefni liggja að baki, allt skemmtilegt bara misskemmtilegt. Njótið hvors annars :)
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Auswitsch, götumynd af gamla hlutanum
  • Auswitsch, nr. 2
  • Auswithsch, hvaða merki bar fólk
  • Herbergið í Krakow
  • Hótelsvítan í Varsjá

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 835

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband