Ljósanótt.

Ég fór í bíltúr með vinkonu minni í gær eftir frábært matarboð hjá sameiginlegu vinafólki.
Við ákváðum að kíkja í bíltúr á Ljósanótt, sem var per seg bara fín hugmynd. En við vorum sein og vorum komin ca. 23.30 í Reykjanesbæ og þá ,,milljón" bílar að fara úr bænum og umferðin gekk hægt enda sérlega óheppilegar allar þær framkvæmdir sem eru á Reykjanesbrautinni þegar svona vinsæl bæjarhátíð er í gangi.
Við rúntum þarna og töluðuðum við vinsamlega og eldhressa hjálparsveitameðlimi. Það sem aftur á móti VAKTI athygli mína var að á götum bæjarins var ekki mikið að fólki á þessum tíma en þeir sem voru voru á aldrinum ca. 14 - 17 ára. Þessir krakkar voru alveg flottir og ekki með nein læti en þau voru flest að drekka bjór og 9 af 10 að fá sér smók.

Við fórum svo í rólegheitum út úr bænum, s.s. skelltum okkur í þessa endalausu bílaröð. En hún gekk þótt hægt væri. Lögreglan stjórnaði því sem hún gat af myndarbrag.

Á leiðinni urðu, eins og gengur, nokkrir frekar óþolinmóðir og trylltu framúr hægra megin við röðina, heppnir að þeir voru ekki í Þýskalandi þar sem þessi hegðun í umferðinni er litin MJÖG alvarlegum augum. Þetta var örugglega fólkið sem skiptir um stöð þegar auglýsingar umferðarstofu birtast....

Njótið dagsins, hann lítur vel út :)

Mbk
Sigurjón Sigurðsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurjón Sigurðsson

Höfundur

Sigurjón Sigurðsson
Sigurjón Sigurðsson
Höfundur er Hafnfirðingur sem spilaði lengi handbolta og heldur enn mikið upp á það sport. Golf og borðtennis hafa þó komið sterk inn undanfarið. Núverandi búseta er Club Punta Arabí - Es Canar - Ibiza. Starfa hér fyrir íslenska ferðaskrifstofu, Trans Atlantic. Ágætt hjá okkur í fyrra, gott í ár en öll teikn stefna í mikla aukningu á næsta ári. Höfundur hefur lokið prófi í viðskiptafræði BSc. og er með próf fyrir lengra komna í spænsku. Höfundur hefur komið víða við í sínu lífi og mörg verkefni liggja að baki, allt skemmtilegt bara misskemmtilegt. Njótið hvors annars :)
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Auswitsch, götumynd af gamla hlutanum
  • Auswitsch, nr. 2
  • Auswithsch, hvaða merki bar fólk
  • Herbergið í Krakow
  • Hótelsvítan í Varsjá

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband